
Amniotar
Öll hryggdýr hafa fósturhimnu (eða himnur) sem umlykja gulusekkinn. Amniotar hafa 3 auka-
fósturhimnur:
1. Æðabelg (chorion)
2. Líknarbelg (amnion)
3. Þvagbelg (allantois)
Æðabelgurinn og líknarbelgurinn eru útvextir úr líkamsvegg fóstursins. Þeir vaxa utanum fóstrið
þangað til þeir mætast. Á mótunum renna himnurnar saman svo úr verður ytri himna (æðabelgurinn)
sem umlykur allt innihald eggsins og innri himna (líknarbelgurinn) sem umlykur fóstrið.
Þvagbelgurinn er útvöxtur úr afturgörn fóstursins og er því innan æðabelgsins.
Egg Amniota:
1. Skurn
• Leðurkennd eða kalk.
• Þykkari skurn hjá mörgum eðlum og fuglum.
• Horfin hjá spendýrum.
2. Æðabelgur = Chorion
• Æðar í æðabelg tengjast skurn
• Grær fastur við legvegg spendýra
3. Þvagbelgur (allantois)
• Myndast útfrá afturgörn fóstursins.
•Verður að fylgju hjá fylgjudýrum (Eutherians).
• Chorioallantoic = Fylgja úr himnum æðabelgs og þvagbelgs
4. Gulubelgur = Yolk sac
• Umlykur forðanæringu fósturs.
• Verður að fylgju hjá pokadýrum (og sumum spendýrum).
•Choriovitelline fylgja
5. Líknarbelgur (amnion)
• Umlykur og verndar fóstur.
• Amniotar verða að leggja egg á landi Ekki hægt í vatni.
•Egg Non-Amniota geta verið bæði á þurrum + rökum stöðum, en egg Amniota þurfa ákveðin
raka.
• Amniotar sleppa lirfustigi og þar með verða tálknin óþörf.
• Engin hliðarrák hjá amniotum en sjást leifar af henni á lirfum froskdýra.